LANDKÖNNUÐIR · UPPLÝSINGAR
Persónuvernd
Drög · 30. september 2026
1. Ábyrgðaraðili
[Skráð heiti rekstraraðila], kt. [kennitala], ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga hjá Landkönnuðum. Sjá samskiptaupplýsingar. Lög nr. 90/2018 og almenna persónuverndarreglugerðin gilda um vinnsluna.
2. Upplýsingar sem þjónustan vinnur með
- Aðgangur: fornafn, eftirnafn, netfang, kyn, stofndagur og lykilorðshash. Kyn er notað við val á prófílmynd.
- Ferðir: innfluttar GPX-skrár eða ferðagögn frá Strava, nákvæmar GPS-leiðir, tímasetningar, vegalengd, hækkun, tegund ferðar og tengd fjallaafrek.
- Strava-tenging: auðkenni og nafn íþróttamanns, veittar heimildir og dulkóðaðir aðgangs- og endurnýjunarlyklar, ef þú tengir reikninginn.
- Valinn upphafsstaður eða heimili, ef þú vistar það fyrir leiðarútreikninga. Staðsetning úr vafra er aðeins sótt þegar þú biður um hana og heimilar hana í vafranum.
- Innskráningarlota, valdar stillingar og tæknilegar upplýsingar við samskipti við vefþjón og gagnaveitur.
3. Tilgangur og vinnsluheimildir
Upplýsingar um aðgang og þær ferðir sem þú flytur inn eru notaðar til að veita umbeðna þjónustu, reikna ferðatölfræði og birta persónulega yfirsýn. Framkvæmd samnings getur verið heimild fyrir þeirri vinnslu sem er nauðsynleg til þess. Vinnsla vegna öryggis og misnotkunarvarna getur byggst á lögmætum hagsmunum, að undangengnu mati á nauðsyn og réttindum notenda. Lagaskylda getur átt við um gögn sem lög krefjast að séu varðveitt.
[Staðfesta þarf vinnsluheimild fyrir hvern gagnalið, þ.m.t. nauðsyn skyldureits fyrir kyn, staðsetningargögn og valkvæða eiginleika. Samþykki, þar sem það á við, verður að vera sértækt og afturkallanlegt.]
4. Viðtakendur og þjónustuaðilar
Þú velur hvort Strava sé tengt. Kortið sækir kortaflísar til OpenStreetMap og hæðarflísar í Amazon S3; sum forritasöfn eru sótt frá unpkg, jsDelivr og code.jquery.com. Við slíkar vefbeiðnir geta viðtakendur séð IP-tölu, vafraupplýsingar og umbeðna slóð eða kortasvæði. Valinn leiðarreiknir getur fengið upphafs- og áfangastað eftir uppsetningu þjónustunnar.
Hýsing og vinnsluaðilar: [Skrá þjónustuaðila, hlutverk og hýsingarlönd].
Flutningur utan EES: [Staðfesta viðtakendur, lönd, heimildir og verndarráðstafanir ásamt leið til að fá afrit þeirra].
5. Varðveisla og eyðing
Ferðir og reikningsgögn eru geymd til að birta ferðasöguna. Aftenging Strava fjarlægir tenginguna en eyðir ekki ferðum sem þegar hafa verið fluttar inn. Hægt er að eyða einstökum ferðum. Sjálfvirk eyðing alls aðgangs og heildarútflutningur hafa ekki verið útfærð.
Varðveislutímar: [Ákveða tíma eða viðmið fyrir aðgang, ferðir, upphafsstaði, annála og öryggisafrit, auk eyðingarferlis].
6. Réttindi þín
Að uppfylltum skilyrðum laga getur þú óskað eftir aðgangi, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu og flutningi gagna, andmælt vinnslu og afturkallað samþykki án þess að það hafi áhrif á lögmæti fyrri vinnslu. Hafðu samband við rekstraraðila. Beiðnum skal almennt svarað innan mánaðar, með heimild til framlengingar samkvæmt lögum. Þú getur kvartað til Persónuverndar.
7. Aðrar upplýsingar
Án nauðsynlegra reikningsupplýsinga er ekki hægt að stofna aðgang. Ferðainnlestur og Strava-tenging eru valkvæð. Útreikningar á afrekum og tölfræði fara fram sjálfvirkt; þeir eru ekki ætlaðir sem ákvarðanir með réttaráhrif. Breytingar á þessari fræðslu verða dagsettar á síðunni.
[Fullgera þarf aldursviðmið, fræðslu fyrir börn ef þjónustan beinist að þeim, aðgangsstýringu, réttindabeiðnaferli og mat á því hvort sérstakt áhættumat eða mat á áhrifum á persónuvernd sé nauðsynlegt.]